Íslenska  English
Prenta |  Senda

Skil á efni til okkar


Tölvunotendur þurfa að huga að mörgu áður en þeir skila prentverki „tilbúnu á diski“ til prentsmiðju.

  • Ef þú sendir verkið á diski, hvort sem það er CD, minnislykli eða Zip, merkið diskinn með nafni verksins, nafni eiganda og símanúmeri.
  • Láttu letur (fonta) ávallt fylgja með verkinu.
  • Vistaðu myndir í CMYK-litum.
  • Vistaðu skannaðar myndir í JPG, EPS eða TIFF-sniði.
  • Vistaðu tölvuteiknaðar myndir í 300dpi.
  • Láttu allar myndir fylgja með skjalinu (JPG, TIFF og EPS). Notaðu „Collect“ skipunina í FreeHand og QuarkXPress.
  • Sendu lokapróförk með skjalinu.
  • Notaðu helst þau forrit sem við mælum með.
  • Hafðu ekki önnur skjöl á diskinum en þau sem á að prenta og alls ekki fleiri en eina útgáfu af hverju skjali.
  • Að lokum: Leitaðu upplýsinga hjá prentsmiðju um hluti sem þú ert ekki viss um áður en hafist er handa. Eitt símtal getur sparað mikið fé og fyrirhöfn.

Skil á gögnum inn til vinnslu

  • Ef texti er á Word formi og myndir með í skjalinu þarf að skila inn myndunum líka á jpg, tif, eps eða því formi sem þær eru með textanum
  • Ef skanna þarf inn myndir eru ljósrit og tölvuútprentaðar myndir verri en ljósmyndir eða filmur.
  • Myndir af netinu eru yfirleitt ónothæfar nema þær séu þeim mun stærri.
  • Digital myndir þurfa að vera í stærsta formi sem mögulegt er.