Stanzasafn
Reiknivél
Skil á efni
ftp svæði
Við státum af mestu breidd í prentun á landinu. Fyrirtækið hefur vaxið jafnt og þétt frá stofnun og höfum við fjárfest í öflugum vélakosti og safnað að okkur miklum mannauði. Verkin okkar tala sínu máli. Til dæmis má nefna, að umbúðir frá Prentmeti má finna í hillum og skápum nánast allra landsmanna.
Þegar við segjumst vera með mestu breidd í prentun á landinu á einum stað, stöndum við við það. Undir einu og sama þaki getur þú látið prenta allt frá nafnspjöldum og boðskortum til vöruumbúða og bóka. Ekkert verk er of stórt og ekkert verk er of smátt. Hafir þú hugmynd sem þú vilt útfæra betur og koma í framkvæmd, hafðu þá samband við viðskiptastjóra okkar eða hönnuði, sem aðstoða þig með ánægju. Okkar styrkleiki er að finna lausnir fyrir viðskiptavini okkar.
Eins og gefur að skilja verða okkar vörur til með liti og pappír að vopni og því eru möguleikarnir óteljandi og vöruúrvalið ekki tæmandi hér á vefnum. Við höfum tekið saman hluta þess sem í boði er og einfaldað það í eftirfarandi leiðir:
Kynningarefni
Skrifstofan
Umbúðavinnsla
Útgáfa