Stanzasafn
Reiknivél
Skil á efni
ftp svæði
Prentmet er með FTP svæði fyrir viðskiptavini til að hlaða inn prentskjölum. FTP svæðið er varið að því leyti að gestir svæðisins geta aðeins hlaðið inn efni en ekki sótt svo ómögulegt er fyrir fyrirtæki að skoða annarra prentskjöl.
Smelltu hér til að tengjast FTP þjón Prentmets
Leiðbeiningar fyrir Windows notendurLeiðbeiningar fyrir MAC notendur
FTP er skammstöfun fyrir File Transfer Protocol eða skjalaflutning. Í stuttu máli er þetta mappa á okkar netþjónum sem er aðgengileg gestum vefsins en samt háð okkar takmörkunum með aðgangsstýringu (sjá í texta hér að ofan). FTP svæðið er hugsað fyrir stærri gagnasendingar sem þarf að senda í gegnum netið. Tölvupóstsendingar til Prentmets eru háðar stærðartakmörkunum og því aðeins hægt að senda 50mb tölvupósta og minni. FTP svæðið býður upp á nánast ótakmarkaða skjal stærð í gagnaflutningum en þó er flutningshraði háður nettengingu viðskiptavinar.